Reunion farar fóru hamförum í salnum á
laugardagskvöldið, en aðkoman að salnum var HRIKALEG á
sunnudeginum. Maðurinn sem leigði okkur salinn þurfti að taka
sjóveikispillur eftir að hafa séð salinn á sunnudeginum. Hann var
gjörsamlega sjokkeraður yfir óganginum í okkur :/
Nefndin auglýsir eftir einstakling sem
að gerði ekki betri hluti en það að Rústa einni gluggakistunni í
salnum. Þetta gerði það að verkum að í þynnku á sunnudegi stóðum
við í því að negla hana upp aftur!
Óöruggar heimildir eru fyrir því að
tveir aðilar úr árganginum (stelpa og strákur) hafi farið heim
saman þetta kvöld. Við viljum ekki birta nöfn þessara aðila þar sem
við teljum þetta viðkvæmt mál, en frekari upplýsingar fást í
slúðursíma: 6989386.
Margrét læstist í bíl nokkrum fyrir
utan heimili sitt í Rimahverfi, þegar hún vaknaði um morguninn
þurfti hún að flauta svo einhver gæti komið og opnað fyrir
henni.
Óli Páll mætti sveittur á Reunionið í
nýjum kokteilskóm, en þeir gerðu víst ekki mikið gagn.

kokteilskórnir frægu...
Viktoría hafi beitt franska kossinum að
ungum og ‘óreyndum’ aðila í salnum.
Guðrún talaði víst fleiri en eitt
tungumál þetta kvöld...
Bera þurfti Valgerði (DÓ) úr salnum og
út í leigubíl í enda kvöldsins.
María hringdi heim til sín og heimtaði
að mamma sín sendi sér SMS!!!
Guðrún kom heim klukkan 7 am
húslyklalaus og vekur alla fjölskylduna. Mamma hennar var í sjokki
að sjá útganginn á barninu og segir við hana; "G u ð r ú n, þú ert
stjörf af drykkju"!
Við auglýsum eftir einstakling sem tók
leigubíl með Konný, Helgu Maríu og Maríu heim af djamminu, en sökum
minnisleysis þá vita þær ekki hver fjórði aðilinn er.
Sterkur grunur leikur á að bjórinn hafi
verið eitraður þetta kvöld... Við efumst um að ein manneskja hafi
ekki verið hauslaus þetta kvöld!
Myndir úr DÓ partýi og sal eru
væntanlegar inn á síðuna í kvöld, en fleiri myndir frá hinum
bekkjunum koma inn á morgun. Einnig ef þið hafið skemmtilegar
myndir sem þið viljið deila með árganginum þá endilega hafið
samband. Slædsjóvið sem sýnt var á reunioninu kemur einnig inn á
morgun...
Stay tuned...